Atburðarteljari

Auglýsing

Leit

Stúdentsjól!

26. desember 2007 klukkan 01:26
Jæja, þá eru bara jólin að verða búin og maður er bara orðinn stúdent! Lífið kemur manni sífellt á óvart!
Útskriftardagurinn rann upp þann 21. desember, bjartur og fagur. Athöfnin var ótrúlega jólaleg og skemmtieg og kórinn kryddaði (eins og vanalega) upp á stemninguna. Það var ekki leiðinlegt að fá að syngja með stúdentshúfuna í kórnum, -enda með eindæmum smart húfa! Svo var bara tjúttað fram á rauða!  Ekkert smá gott kvöld í ekkert smá góðra vina hópi :)

Núna er svo bara Jóladagurinn mikli að kveldi kominn og ég ligg hérna uppi í rúmi í náttfötunum, útþanin af allt of góðum mat! Það er ótrúlegt hvað mér tekst alltaf að borða mikið á jólunum! Ég læri ekki af mistökunum! Maður endar alltaf afvetla uppi í sófa og getur sig enganvegin hreyft sökum ofáts! Svo er einmitt konfektskálin yfirleitt geymt á sófaborðinu og auðvitað þarf maður að gæða sér á nokkrum molum svona til að bæta ástandið! -Erfið þessi jól!

En á morgun er annar í jólum og planið er að borða yfir sig hjá ömmu og afa og fara svo á jóladansleik Milljónamæringanna! Júhúú..! Það er svo snilldarlega gaman! Hlakka gjööööðveikt til ;)

En svona að lokum,
myndir frá útskriftinni:


Karitas, ég og Marta -Mí loooov ðís tjikks!!


Útskriftarhópurinn glæsilegi!
Lilja Björk Runólfsdóttir
4 athugasemdir

Kínamyndirnar komnar í hús!

24. október 2007 klukkan 16:44
Jæja, loksins er ég búin að setja allar milljón kínamyndirnar á veraldarvefinn svo alheimurinn geti notið þeirra!

  
  
Lilja Björk Runólfsdóttir
3 athugasemdir

Allt´ða fína frá Kína

09. október 2007 klukkan 11:39
Jæja, nýtt blogg!?

Margt búið að gerast síðan síðast! Skólinn byrjaði í lok ágúst og það var ótrúlega gaman að hitta alla aftur. Ég er líka í svo skemmtilegum tímum! Parísaráfanganum í frönsku (við förum einmitt út a föstudaginn), myndmennt, dönskum kvikmyndum og svo bara eðlisfræði og stærðfræði. Svo er bara útskrift um jólin! Ótrúelga skrýtið að vera að klára menntaskólann. Mér finnst ég búin að vera svo stutt í MH!

En það áhugaverðasta sem er búið að gerast í lífi mínu síðan í ágúst er án efa ferðalag Hamrahlíðarkórsins til Kína!
Ferðalagið hófst 18. september þar sem allir hittust eldsnemma um morguninn niðri í MH áður en lagt var af stað með rútu til Keflavíkur. Ég held að enginn hafi í rauninni trúað því að við værum í alvörunni að fara til Kína. Þetta var ennþá svo fjarlægt! En eftir mikla rútu- og flugvélasetu og bið skiluðum við okkur þó að lokum á leiðarenda. Við vorum komin alla leið til Peking! Til að gera langa sögu stutta ætla ég að punkta niður það helsta sem átti sér stað í Kínaríki;

  • Við gistum hvert og eitt hjá kínverskum fjölskyldum. (Það var frábær reynsla og ólýsanlegt að fá að kynnast alvöru kínversku heimilishaldi).
  • Við fórum á Kínamúrinn.
  • Við skoðuðum Torg hins himneska friðar og Forboðnu borgina.
  • Við héldum (að sjálfsögðu) fullt af tónleikum sem heppnuðust allir mjög vel!
  • Við fórum til þriggja annara borga; Xianyang, Wuhan og Chingdao.
  • Við sáum Terracotta hermennina í Xianyang.
  • Við fórum fórum í veislu til sendiherrans (og fengum meeeegagóðan íslenskan mat!!)
  • Við borðuðum ALLTAF með prjónum (að vísu notuðumst við við guðsgafflana þegar koma að McDonalds og KFC).
  • Ég fór í klippingu og þriggja tíma nudd (sem kostaði mig samtals tæpar 2000 kr.!!)
  • Við fórum í fullt af fleiri skoðunarferðum og skoðuðum m.a. kínverskan listaháskóla.
  • Við fengum einkatónleika með kínverskum óperuatriðum sem voru geðveik! (geðveik í báðum merkingum orðsins).
Ég er örugglega að gleyma helmingnum af því sem við gerðum en þetta er svona það helsta sem ég man.
En ferðin var algjörlega ólýsaneg! Þetta er eitt að skemmtilegasta og erfiðasta sem ég hef gert! Ferðalagið heim tók tæplega 40 klukkutíma! ...ég er líka búin að sofa fáránlega mikið eftir að ég kom! Sofna alltaf fyrir 10 á kvöldin, yfirleitt alveg óvart! Núna er ég að slá eitthvað met! Klukkan er orðin 1 um nóttu!
Usss.. ég verð að fara að sofa!

Svo er það bara París á föstudaginn!

En bless í bili,
-farin að sofa ZZZZZZZZZzzzzzzzzzzzzzzz
Lilja Björk Runólfsdóttir
1 athugasemd

Yndislega London!

21. ágúst 2007 klukkan 21:56
Fimmtudaginn 16. ágúst, MJÖÖÖG snemma morguns, lögðum við stelpurnar (ég, Marta, Karitas, Kristín, Elfa og Ásbjörg) af stað til Bretlands, nánar tiltekið Englands, nánar tiltekið London, nánar tiltekið Kensington, nánar tiltekið Hotel 65, nánar tiltekið gamlar rotnandi kjallaríbúðir með fúkkalykt!! Kjallaraíbúðirnar vöndust að vísu mjög fljótlega og voru undir lokin bara orðnar frekar heimilislegar í hugum okkar. Fullt af rúmum! Þetta voru tvö herbergi svo við vorum þrjár í hvoru. En það voru samt þrjú stór rúm og eitt hjónarúm í hvoru herbergi! Kósí ;) Nema hvað að þeim var öllum stalfað mjög þétt hlið við hlið svo það var eiginlega ekki hægt að labba á milli þeirra! Eeeen við sváfum vel þarna.

Margt var brallað, og ýmislegt fyndið gerðist. Elfa minntist á nokkra sekmmtilega hluti í blogginu sínu; 
-t.d. þegar ég átti að fá 5 pens til baka úr lestarmiðavélinni en fékk ÍSLENSKAN tíkall!! Svo prófaði Ásbjörg að setja hann í aftur og vélin tók við honum eins og 5 pensum. Furðulegt nokk!
-Á leiðinni heim fékk svo taskan hennar Ásbjargar sjálfstæðan vilja og rann af stað eftir allri endilangri lestinni þangað til hún krassaði á vegg. Það var fyndið!
-Kristínu tókst svo að týnast í stærstu Topshop búð sem ég hef augum litið á Oxford street. Við Elfa fórum að leita af henni út um allt en það var ekki möguleiki að finna hana sama hvað við leituðum! ALLT of stór búð. Að lokum brugðum við á það ráð að láta kalla hana upp í kallkerfinu. Ha ha við hættum ekki að hlæja þegar gaurinn byrjaði að kalla út um alla búð -Kvristína Mavría, Kvristína Mavría.....
-Við ætluðum á rosalegt djamm á Ministry of Sound skemmtistaðnum á föstudagskvöldið. Tókum okkur svona tvo klukkutíma (+) í að gera okkur tilbúnar. Svo skvísuðumst við með leigubíl alla leið út í bláinn þar sem skemmtistaðurinn var. Þegar við komum svo þangað og leigubíllinn var BÚINN að keyra í burtu rákum við augun í miða framan á skemmtistaðnum "Canceled!" ...við bara "NEEEEI!!" en svo dóum við úr hlátri og gátum ekki hætt! Ekki bætti úr skák að Ásbjörgu var geggjað mál að pissa en það var ekki hægt að fara neitt svo hún fann sér horn og sagði "stelpur, felið mig!!" Og svo pissaði hún bara í hornið og við hlógum og hlógum allan tímann því þetta var svo augljós! Bílarnir sem keyrðu framhjá fóru meira að segja að flauta!! 

En þetta var alveg frábær ferð og við gerðum margt rosa skemmtilegt;

                    -Við fórum á Billy Elliot
                    -Versluðum (allt of mikið) á Oxford street, Hammersmith, Portabello og
                     Camden markaði.
                    -Túristuðumst og sáum Buckingham Palace, Big Ben, Green Park, London Eye 
                     og sitt hvað fleira.
                    -Borðuðum á æðislegum tailenskum veitingastað í Soho þar sem allt var
                     bleikt!
                    -Fórum á vaxmyndasafnið.
                    - og fleira, og fleira.....

Skemmtileg ferð!

En nú byrjar bara skólinn á morgun. Sumarið bara búið. Djöfull er þetta fljótt að líða.
Ég og Sigrún systir erum samt búnar að komast að því að maður geti aldrei vorkennt sér vegna þess að ástandið gæti alltaf verið verra... 
...maður gæti nefninlega verið daufdumur, með engar hendur og fætur, verið tilfinningalaus í húðinni, með krónískan kláða í eyrunum og stöðugt kvef svo maður gæti ekki andað með nefinu! Þökkum Guði fyrir að vera ekki svoleiðis!!

 
Lilja Björk Runólfsdóttir
4 athugasemdir

Eyjar 2007!

07. ágúst 2007 klukkan 18:56
Ójá! Ef þú ætlarðir að spyrja mig ,,hvernig var í Eyjum?" þá er svarið ,,GEÐVEIKT!" Vá, það var svo gaman! Ég ætla pottþétt aftur á næsta ári! Þetta er eitthvað sem allir verða að prófa. Fáránlega mikil stemning!

Brekkusöngurinn á sunnudaginn var góður! Árni kallinn! Svo var náttúrulega sjúkt þegar kveikt var á blysunum! Hundrað og eitthvað blys lýstu upp dalinn (eins og sést á myndinni).
Við hittum ótrúlega mikið af skemmtilegu fólki og geðveikt marga sem við þekktum! Það voru svo margir þarna. 10.000 manns síðasta kvöldið!
Búin að setja inn hellings af myndum. Gerðist mynda-meiníak og tók meira en 100 myndir!

Lilja Björk Runólfsdóttir
3 athugasemdir

Útilegumenn

10. júlí 2007 klukkan 01:51
Já sumarið er tíminn! Á sumrin er hægt að gera ýmsa skemmtilega hluti sem ekki er hægt að gera á veturna. Tjaldútilega er gott dæmi og tel ég mjög nauðsynlegt að allir fari í a.m.k. eina slíka á sumri! Maður hittir svo mikið af fólki og allir eru í svo gúddí fíling! Það bregst ekki að einhvers staðar er tekinn upp gítar og svo myndast svona hópar út um allt þar sem allir eru að syngja saman. -Stál og hnífur er merkið mitt....



Já, við skelltum okkur einmitt á franska daga núna á Akranesi, ég, Marta, Karitas og Guðrún. VÁ! hvað það var ótrúelga gaman! Fórum á rosa skemmtilegt ball með Bubba og Buff og fleirum! Ég dansaði af mér rassgatið! Ég dansaði svo mikið að byrjaði að blæða úr eyrunum á mér! Án djóks! Hehe... ég var með svo þunga eyrnalokka að mig var byrjað að verkja í eyrun undir lokin. Svo þegar ég tók þá úr mér var byrjað að blæða úr götunum. Rosa geðslegt!!
En allavega, þá var rosa gaman og svo var spilað á gítar og sungið langt fram á nótt!

Ég setti myndir inn á síðuna en því miður varð myndavélin mín batteríslaus svo þær eru frekar fáar.
Svo eru líka komnar myndir úr ferðalagi sem ég Sigrún og Óli fórum í helgina á undan. Geggjað skemmtilegt ferðalag og mjög skemmtilegar myndir! Við gerðumst æ flippaðari eftir því sem leið á kvöldið. Spurning hvort áfengi hafi komið við sögu ;)
Lilja Björk Runólfsdóttir
5 athugasemdir

London BABY!

29. maí 2007 klukkan 13:55
Jæja, ég er loksins komin með vinnu. Byrja að vinna á morgun hjá Styrktarfélagi vangefinna á Bjarkarási. Það er örugglega frábær vinna og ótrúlega gefandi. Bjarkarás er svona verndaður vinnustaður fyrir þroskahamlaða einstakling. Starf mitt felst í því að hjálpa fólkinu við vinnuna, fara með það út í göngutúra og fleira. Svo er þetta líka dagvinna frá hálf 9 til hálf 5 virka daga, sem er æði! :)

Síðustu sýningar á We Will Rock You voru á fimmtudaginn og föstudaginn. Allt gekk rosa vel og það var ekkert smá gaman! Skemmtilegur hópur :)
-Myndir á síðunni hennar Hreindísar

Svo er maður bara búinn að bóka ferð til London 16. ágúst! Vá hvað ég hlakka til! Við förum sex stelpur saman svo þetta verður svona stelpu-verslunar-djamm-ferð! Við erum líka búnar að bóka miða á Billy Elliot söngleikinn sem er víst geðveikur! Gaman, gaman, GAMAN!

London BABY!!


Bæ í bili
Lilja Björk Runólfsdóttir
9 athugasemdir

Sumarið er tíminn

07. maí 2007 klukkan 23:57
Ókei vá, það er skammarlega langt síðan ég bloggaði síðast. Ég er glataður bloggari, það verður ekki af því skafið!
En já, margt búið að gerast undanfarna daga. Hér kemur smá svona listi:

  • Ég fór til Ítalíu um páskana með Hirti og familíunni hans. Það var æði! Vorum fyrstu dagana í húsinu (villunni) þerra í Montabone á Norður-Ítalíu. Sól og 20° hiti, ekki slæmt! Svo vorum við síðasta daginn í Milano. Það er frábær borg!! Miklu skemmtilegri og fallegri en ég bjóst við. -Fullt af myndum inni á síðunni.
  • Ég tók 5. stig í FÍH. Veeei! :)
  • Kórárshátíðin var í apríl. Það var ógeðslega gaman! Myndir inni á síðunni hennar Elfu minnar og hjá fleirum.
  • Lokapróf! Lokaprófin í MH eru í fullum gangi þessa dagana. Ég er reyndar hötuð af mörgum núna því ég er BÚIN með þau! Ha ha! Kláraði síðasta prófið í morgun. Þá á ég bara jasshljómfræðiprófið eftir í FÍH og svo er ég búin!

Ohh, ég er svo ótrúlega óheppin! Ég var alveg rosa sniðug í vetur og sótti um sumarvinnu hjá fyritækinu BM áðgjöf. -Ætlaði að vera snemma í´ðí svo ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur af sumarvinnu. En hvað haldiði!? Er ekki bara fyrirtækið farið á hausinn!! Svo ég þarf bara að gjöra svo vel að leita mér að sumarvinnu NÚNA. Alveg óþolandi! Búið að ráða alla í bestu störfin :( En svona getur þetta verið.

Annars er ég í frekar góðum gír núna. Sumar og sól á næsta leiti og enginn heimalærdómur! Mmmmm... Hvað jafnast á við sumarið?

Lilja Björk Runólfsdóttir
3 athugasemdir

Gömlu góðu grunnskólaárin

13. mars 2007 klukkan 14:59


Já þið haldið kannski að þetta sé gert í photoshop en NEI! Svo er ekki! Þetta er alvöru Lilja og alvöru Magni! Ég skal segja ykkur það! Maður þekkir fræga fólkið sko Svalur

Hehe, annars svona í alvöru var þessi mynd tekin á árshátíðinni í 10. bekk í Snælandsskóla. Þá spiluðu Á móti sól og okkur Mörtu fannst alveg rosa fyndið að spyrja hvort við mættum láta taka mynd af okkur með þeim ;) -Ég hefði ekki geta ímyndað mér að Magni yrði eitthvað world-celeb þá! En hann kom öllum á óvart með einstökum rokkhæfileikum sínum!

Ég var að finna svo mikið af gömlum myndum sem ég var búin að steingleyma! Það er svo gaman að grafa svona fjársjóð upp! Hérna koma nokkur sýnishorn:


Gamli vinahópurinn úr grunnskóla (vantar samt nokkra)

Ég með æðislega hárgreiðslu!!

Axel með rosa töff smokkahúfu og Marta

Ég og Marta í léttri sveiflu!

Ég með æðislegt permanett og Karitas
Lilja Björk Runólfsdóttir
7 athugasemdir

28. febrúar 2007 klukkan 15:55
Halló og hæ!

Það er allt að gerast þessa dagana! Skólinn heimtar heimalærdóm meira en nokkru sinni fyrr, We Will Rock You gerði næstum út af við mig í síðustu viku, söngvakeppnin er á föstudaginn, ég þurfti að syngja á tónleikum á mánudaginn, stigsprófið mitt er á næsta leiti, kóræfingar, vinna og svo held ég að mér hafi tekist að næla mér í einhver veikindi svona til að toppa allt! Rosa gaman, rosa fjör!!

Annars get ég nú ekkert verið að kvarta þar sem þetta er flest æðislega gaman. We Will Rock You heppnaðist ótrúelga vel og ég skemmti mér ekkert smá vel. Skemmtilegur hópur líka :) Ég setti inn fullt af myndum! Svo eru líka myndir inni á síðunni hennar Hreindísar, http://hreindis.bloggar.is .



Svo er bara söngvakeppnin á föstudaginn. Ég hlakka rosa til! Það er fullt af skemmtilegu fólki að fara að taka þátt og þetta verður örugglega hörkukeppni! Ég ætla að syngja lagið ,,Fool on the Hill" með Bílunum, sem heitir reyndar ,,Draumur vinnukonunnar" með minni glæsilegu þýðingu ;) En þetta verður rosa gaman, Inga Hlíf og Hreindís ætla að vera svo dásamlegar að spila á þverflautu í atriðinu og Hjörtur minn á harmónikku, æði!

En þá er ekki fleira að þessu sinni, fréttir verða næst lesnar kl. 6
Lilja Björk Runólfsdóttir
1 athugasemd